Fréttir fruma
Námskeið um gerð umsókna vegna styrkja, lána og þróunarverkefna
Námskeið verður haldið í fundarherbergi Frumunnar í Nýheimum mánudaginn 8. nóvember 2004.
Námskeið verður haldið í fundarherbergi Frumunnar í Nýheimum mánudaginn 8. nóvember 2004. Farið verður yfir þau atriði sem fram þurfa að koma í umsóknum til Byggðastofnunnar og nokkurra annarra stofnana og fjárfestingasjóða. Jafnframt verða kynntir helstu aðilar sem veita stuðning í formi áhættufjármögnunar, styrkja og þróunarverkefna. Námskeiðið er sniðið að þörfum smárra fyrirtækja og einstaklinga sem hyggjast stofna til atvinnurekstrar. Námskeiðið hefst kl. 17:00 í fundarsal Frumkvöðlasetursins í Nýheimum, Höfn Hornafirði og er áætlað að því ljúki um kl. 19:30.
Verð: kr. 2000.
Leiðbeinandi: Edda Elísabet Egilsdóttir, starfsmaður Þróunarfélags Austurlands
Áhugasamir geta skráð sig í síma 470 8080 eða á netfanginu ari@fruma.is
