Fréttir fruma

Himnaríki á jörð (@Skaftafell)
Himnaríki á jörð/ Heaven on earth
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) [myndasafn]
Mynd 2 af 2
1 2

Málþing um atvinnumál

Málefni: Klasar - Samstarf og samkeppni – Leiðir til að efla atvinnulíf.

02.11.2004

Haldið verður málþing undir heitinu Klasar - samstarf og samkeppni, 12. nóvember n.k. í Nýheimum á Höfn í Hornafirði. Málþingið hefst klukkan 12:00, áætlað er að því ljúki klukkan 17:00.

Í stuttu máli byggir klasi á því að margvíslegir aðilar, t.d. fyrirtæki og opinberar stofnanir, taka höndum saman um samvinnu og sérhæfingu í atvinnumálum. Klasinn sem er myndaður byggir á sérstöðu í atvinnuumhverfi þessara aðila og hefur þann tilgang að bæta samkeppnisstöðu þeirra.

 Á málþinginu verður samstarfsformið klasar kynnt, hagnýt not klasa fyrir fyrirtæki og stofnanir. Klasar hafa víða náð verulegum árangri. Þessu til stuðnings verða dregin fram bæði innlend sem erlend dæmi.

Jafnframt verður farið yfir möguleika fyrirtækja og stofnana á Hornafirði til að efla rekstur sinn með klasasamstarfi. Markmið málþingsins er að fá svar við þeirri spurningu hvort klasa aðferðin geti orðið drifkraftur að atvinnuþróun í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Málþingið er öllum opið sem hafa áhuga á atvinnusköpun og atvinnuþróun.

Frummælendur á málþinginu verða:

  • Dr. Karl Benediktsson, frá Tjörn á Mýrum
  • Karl Friðriksson, Iðntæknistofnun
  • Sævar Kristinsson, Ráðgjafi Netspor ehf.
  • Ari Þ. Þorsteinsson, Frumkvöðlasetur Austurlands ehf.

 

Skráning á málþingið fer fram í síma 470 8000 eða á netfanginu olafia@hornafjordur.is.

 

Frumkvöðlasetur Austurlands og atvinnumálanefnd Hornafjarðar standa að málþinginu í samvinnu við Iðntæknistofnun Íslands, Atvinnuþróunarsjóð Austurlands og Nýheima.

 

Dagskrá málþingsins:

Tími Dagskrá
12:00 Setning /Albert Eymundsson
12:30 Byggða- og atvinnuþróun: Klisjur og klasar/ Karl Benediktsson
13:00 Hvað er klasi - Dæmi ? hagnýt reynsla / Karl Friðriksson & Sævar Kristinsson
13:30 Getur klasi verið drifkraftur atvinnuþróunar / Ari Þorsteinsson
13:40 Aðferðir þátttakenda við og móta og meta klasahugmyndir útskýrðar / Karl Friðriksson & Sævar Kristinsson
14:00 Kaffi
14:20 Spuni með þátttakendum um tækifæri í Sveitarfélaginu Hornarfirði til klasamyndunar
15:20 Skráning í  hópvinnu og úrvinnsla hugmynda
16:20 Framvinda á frekri vinnu  - Kynning á niðurstöðum einstakra hópa
17:00 Lok á málþingi


 



Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica