Fréttir fruma

Hornafjarðarhöfn
Hornafjarðarhöfn
Mynd 2 af 2
1 2

Frumkvöðlastarfið

16.10.2003

Það er mikið líf og fjör í kringum Frumkvöðlasetur Austurlands. Nýlokið er viku nýsköpunar og í þessari viku var haldið námskeið um gerð umsókna vegna styrkja, lána og þróunarverkefna og var það í samvinnu við Þróunarstofu Austurlands. Í næstu viku er fyrirhugað námskeið um stofnun og rekstur smáfyrirtækja og kynningarfundur um viðskiptasérleyfi. Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri Frumkvöðlaseturs Austurlands sagði að þetta námskeið sé ætlað þeim sem hafa áhuga á að stofna fyrirtæki, bæta núverandi rekstur, læra gerð viðskiptaáætlana eða fyrir þá sem eru með einhverja brilliant hugmynd sem allir eru orðnir hundleiðir á að hlusta á og tími því komin til að framkvæma. Skráning á þetta námskeið er til 20. október.

Í hádeginu þann 23. október verður haldin fundur á vegum Frumkvöðlasetursins og í samvinnu við Samtök verslunar og þjónustu þar sem fjallað verður um viðskiptasérleyfi (franchise). Viðskiptasérleyfi felur í sér leigu á viðskiptahugmynd og nýtur vaxandi vinsælda sem rekstrarform fyrirtækja. Nærtækustu dæmi um fyrirtæki sem rekin eru eftir þessu fyrirkomulagi eru Skóbúð Steinars Waage, Pizza 67 og McDonald´s. Vert fyrir okkur hér í Hornafirði að fylgjast með þessari þróun.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica