Fréttir fruma
Fyrstu frumkvöðlarnir í Frumkvöðlasetur Austurlands
Undirritaðir hafa verið samningar við fyrstu frumkvöðlana sem fá aðstöðu í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum á Hornafirði. Þessi fyrirtæki eru Laxanes ehf og Frumkvöðlafræðslan. Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri Frumkvöðlasetursins ásamt þeim Guðjóni Jónssyni f.h. Laxanesi ehf og G. Ágúst Péturssyni undirrituðu samninginn.
Ari sagði að báðir þessir aðilar væru búnir að fá aðstöðu í Frumkvöðlasetrinu. En sú aðstaða inniheldur tölvur, húsnæði og síma, auk þess sem aðstoð er veitt við gerð viðskiptaáætlana, markaðssetningu o.fl. Laxanes mun aðallega helga sig því sem við kemur stangveiði, ræktun á lax og silungi o.fl. Frumkvöðlafræðslan er að undirbúa stofnun sjálfseignarstofnunar sem hannar fræðsluefni fyrir framhaldsskóla og grunnskóla.
Framundan hjá Ara er undirbúningur að tveim námskeiðum sem haldin verða í Nýheimum í október og ætluð öllum sem koma vilja. Fyrra námskeiðið er kennsla í hvernig maður sækir um styrki, en það er flókið dæmi sem nauðsynlegt að kunna, og einnig hvernig umsóknin skal vera. Seinna námskeiðið heitir ,,Stofnun og rekstur smá fyrirtækja”. Nú er tækifærið að skoða hvort ekki er hægt að koma einhverju áhugaverðu í framkvæmd, einhverju sem búið er verið að hugsa lengi um.
