30 manns tóku þátt í málþinginu Skapandi greinar í ríki Vatnajökuls, sem var haldið 26. apríl síðastliðinn í Nýheimum á Höfn í Hornafirði. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands setti málþingið og hélt stutt ávarp. Aðrir frummælendur voru Smári Sigurðsson frá Iðntæknistofnun, Sigurður Steingrímsson frá Impru, Nýsköpunarstofu á Iðntæknistofnun, Guðmundur Oddur Magnússon prófessor við Listaháskóli Íslands, Kristín Gestsdóttir framkvæmdastjóri Hornfirska skemmtifélagsins, Hjalti Þór Vignisson forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, Kristbjörg Jónasdóttir verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Austurlands og Ari Þ. Þorsteinsson framkvæmdastjóri Frumkvöðlaseturs Austurlands ehf. Í setningarávarpi Ólafs Ragnars kom meðal annars fram að eitt af því sem ráði úrslitum í samkeppni nútímans sé hið skapandi hugarflug, hæfileikinn til að fara nýjar leiðir og að hafa til að bera ferska hugsun og frumleika í ríkum mæli.
Lesa meira