112 dagurinn
Eins og undanfarin ár þá hefur Slökkvilið Hornafjarðar verið með opið hús á slökkvistöðinni á 112 deginum, sem er einn af föstu liðum í uppbygging á forvörnum slökkviliðanna í landinu.
Markmið þessa dags er að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur að í gengum það. Markmiðið er að leggja áherslu á heimilin og hvetja til þess að almenningur kanni hvort eldvarnir séu í lagi heima fyrir.
Eldvarnir miða fyrst og fremst að því að tryggja líf og heilsu. Í öðru lagi geta eldvarnir dregið verulega úr tjóni á eignum almennings. Íbúar Hornafjarðar eru hvattir til að kanna hvort eftirfarandi sé til staðra og í lagi á heimilum sínum:
- Reykskynjara, nægjanlega marga á réttum stöðum.
- Þekkingu á fyrstu viðbrögðum.
- Flóttaleiðir, nægilega margar og greiðfærar.
- Mundu símanúmer neyðarlínunnar 112.
- Hægt er að kynna sér upplýsingar um efnið á vef bæjarins hornafjordur.is/stjornsysla/eldvarnaeftirlit.
Í eldvarnaviku er farið í grunnskólanna og nemendum í þriðjabekk gefin kostur á að spreyta sig á léttri spurningagetrau er varða eldvarnir heimilanna. Einn heppin nemandi sem vann getraunina og verur honum tilkynnt um það á næstunni það sem viðurkenning barst okkur ekki því miður í tæka tíð. Slökkvilið Hornajfarðar þakkar öllum þeim sem komu í heimsókn í dag.





Skrifa athugasemd