Fréttir
FAS
FAS
Mynd FAS

11.02.2013 Fréttir

Alexander nýr framhaldsskólameistari í Hornafjarðarmanna

Verðlaunaafhending í Hornafjarðarmanna. Í þessari viku verða námsbækurnar lagðar til hliðar í FAS. Tilefnið er opin vika sem er árlegur viðburður í skólanum.

Það eru nemendur sem skipuleggja dagskrána með Söndru félagsmálafulltrúa skólans. Eitt af því sem nemendur vildu gera var að endurvekja Hornafjarðarmanna en hann féll niður í opinni viku í fyrra.

Eftir hádegi í dag var spilað undir dyggri stjórn útbreiðslustjórans Alberts Eymundssonar. Í upphafi spiluðu tæplega 50 krakkar en þeim fækkaði smám saman eins og reglur í spilinu segja til um. Þegar kom að úrslitaspilinu voru það þau Agnar Ólafsson, Alexander Alvin Einarsson og Nejra Mesetovic sem áttust við.
Í lokin var það Alexander sem stóð uppi sem sigurvegari, Agnar varð í öðru sæti og Nejra í því þriðja. Þau fengu öll viðurkenningarskjal frá útbreiðslustjóranum og gjafabréf upp á pizzur frá Ósnum. Við óskum nýkrýndum framhaldsskólameistara til hamingju með titilinn og óskum honum jafnframt til hamingju með daginn en hann á afmæli í dag.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica