Bolla Bolla Bolla
Bolludagurinn sem er á mánudag er skemmtilegasti dagurinn á árinu í bakaríum landsins og er það engin undantekning hjá Jóni Bakara í Miðbæ.
Að sögn Jóns Finnssonar bankarameistara þá baka þau um 5-6 þúsund bollur fyrir hvern bolludag. Hjá bakaríinu vinna nú 5 manns.
Eins og venjulega þá taka margir forskot á sæluna og byrja fyrr og þeir sem vilja fá sér bollur í dag og um helgina geta skellt sér til Jóns Bakara þar sem boðið er uppá mikið úrval af dýrindis bollum.





Skrifa athugasemd