Fréttir
Sammi
Sammi
Mynd: FAS

08.02.2013 Fréttir

Lífshlaupið í FAS

Á miðvikudag fór af stað vinnustaðakeppnin Lífshlaupið en keppnin er heilsu- og hvatningarverkefni á vegum ÍSÍ.

Þar eru vinnustaðir hvattir til þess að skrá starfsmenn sína í keppni sem snýst um að þeir heyfi sig í 30 mínútur á dag eða meira. Sú hreyfing er svo skráð inn á vef keppninnar. Vinnustaðakeppnin stendur frá 6. - 26. febrúar.

Nú hafa tvö lið skráð sig til leiks á vegum starfsfólks FAS og er mikil stemmning í hópnum fyrir komandi dögum. Gönguhópurinn Sammafjör hefur verið stofnaður og er þar öllum boðið í vikulegar gönguferðir "óháð hára- og fótafjölda" eins og segir í auglýsingu. Þá ráðgera starfsmenn FAS að taka virkan þátt í þeim íþróttum sem í boði eru í sveitarfélaginu.

Lífshlaupið fer vel saman við verkefnið Heilsueflandi framhaldsskóli sem Landlæknisembættið heldur utan um og FAS er aðili að. Á þessu skólaári er lögð áhersla á hreyfingu nemenda sem og starfsmanna skólanna.
Nánari upplýsingar um Lífshlaupið má finna á vef keppninnar www.lifshlaupid.is og upplýsingar um Heilsueflandi framhaldsskóla verkefnið má finna hér.

www.fas.is

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica