Fréttir
FAS Opin vika
FAS Opin vika
Tekist á (Mynd FAS)

06.02.2013 Fréttir

Opin vika í FAS að bresta á

Í  næstu viku stendur mikið til í FAS en þá er hin árlega opna vika á dagskrá. Hefðbundið skólastarf er þá brotið upp og starfa nemendur þá í hópum eftir sínu áhugasviði.

Sex hópar munu starfa í vikunni en þeir eru; fjölmiðlahópur, íþróttahópur, kvikmyndahópur, ljósmyndahópur, útivistarhópur og árshátíðarhópur. Fyrirhuguð verkefni eru af ólíkum toga en til dæmis á að gefa út skólablað, búa til stuttmyndir, halda ljósmyndasýningu og íþróttamót, fara í fjallgöngu og að sjálfsögðu skipuleggja árshátíð skólans sem haldin verður á föstudagskvöldið 15. febrúar í Sindrabæ.
Fyrir utan að starfa í hópum munu nemendur tvisvar taka þátt í sameiginlegri dagskrá. Eftir hádegi á mánudag verður spilaður Hornafjarðarmanni undir leiðsögn útbreiðslustjórans Alberts Eymundssonar og eftir hádegi á miðvikudag verður nemendum skipt í hópa og taka þeir þátt í ýmsum hópeflisleikjum. Til að spilla ekki spennunni fyrir þessum leikjum verður ekki fjallað um þá nánar hér.

Það verður örugglega mikið fjör og mikið gaman í næstu viku og nóg um að vera í FAS eins og alltaf.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica