Fréttir
Leikskólabörn
Leikskólabörn
leikskólinn Lönguhólar

04.02.2013 Fréttir

Dagur leikskólans 6. febrúar

Miðvikudaginn 6.febrúar er dagur leikskólans. Þann dag munu leikskólar landsins gera sér dagamun og minna á störf sín.

Á Lönguhólum verður farið í skrúðgöngu og gengið um bæinn með ýmislegt sem börnin hafa verið að útbúa síðustu vikur sem þau munu sklja eftir hér og þar til að minna vegfarendur á störf leikskólans. Skrúðgangan mun enda í Bárunni þar sem allir munu leika og skemmta sér.

Á Krakkakoti verður tekið á móti nemendum úr 10. bekk sem var boðið í heimsókn á leikskólann í tilefni dagsins. Ætlunin er að leika saman, bæði stórir og smáir og á eftir bjóða börnin í elsta árgangi leikskólans öllum í vöfflur sem þau munu útbúa.

 

Bestu kveðjur,

Margrét og Snæfríður

leikskólastjórar.









BB

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica