Ljúfir tónar í föstudagshádegi
Það hefur skapast sú hefð að í hádeginu á föstudögum sé boðið upp á stutta uppákomu í kaffiteríunni.
Þeir sem að vinna í Nýheimum skiptast gjarnan á að bjóða upp á atburði. Oft er verið að kynna það sem er á döfinni eða starfsemi viðkomandi aðila. Það er þó líka nokkuð um að utanaðkomandi aðilar séu með uppákomu.
Síðast liðinn föstudag buðu nokkrir nemendur í FAS upp á ljúfa tóna á meðan að gestir fengu sér málsverð. Þetta eru krakkar sem eru í námi í FAS en stunda um leið nám í Tónskólanum. Það er alltaf mikilvægur hluti af tónlistarnáminu að koma fram og spila fyrir aðra. Það er því ekki úr vegi að nýta aðstöðuna í teríunni og spila nokkur lög.





Skrifa athugasemd