Fréttir
FAS
FAS
Hafragrauturinn er bæði hollur og góður (MYND:FAS)

04.02.2013 Fréttir

Hafragrautur hjá Prinsessunni á bauninni

"Fyllt á tankinn" fyrir daginn. Eins og eflaust margir vita tekur FAS þátt í verkefni Landlæknisembættisins um Heilsueflandi framhaldsskóla.

Þar er m.a. lögð áhersla á góða næringu.  Af þessu tilefni fengum við rekstraraðila Prinsessunnar á bauninni til liðs við okkur um að bjóða upp á hafragraut alla virka morgna. Tilboðið hefst mánudaginn 4. febrúar. Hægt verður að kaupa vikuáskrift á 500 kr og verður grauturinn í boði milli klukkan tíu og hálfellefu. Athugið að þegar keypt er vikuáskrift gildir hún í eina viku en ekki verður hægt að dreifa áskriftinni niður á lengri tíma.

Hafragrautur er fín leið til að "fylla á tankinn" fyrir daginn. Því er um að gera að drífa sig á mánudagsmorgun í teríuna og tryggja sér áskrift fyrir vikuna.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica