Fréttir
styrkveiting
styrkveiting
Albína Thordarson formaður stjórnar framkvæmdasj., Sigríður Dögg Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Ríkis Vatnajökuls og Steingrímur J. Sigfússon atvinnu- og nýsköpunarráðherra.

04.02.2013 Fréttir

11 milljónir í styrki til framkvæmda á ferðamannastöðum


Sveitarfélagið Hornafjörður fékk samanlagt þriðja hæsta styrk sem var veittur úr Framkvæmdastjóri ferðamannastaða á fimmtudag, um 11 milljónir króna. Alls fengu 44 verkefni styrk og nam heildarupphæðin rúmlega 150 milljónum króna.

 

Sveitarfélagið Hornafjörður sótti um styrk til tveggja verkefna í samstarfi við Ríki Vatnajökuls, Vatnajökulsþjóðgarð og landeigendur að Hólmi og Brunnhól. Verkefnin eru annars vegar umhverfisbætur vestan Jökulsárlóns og hins vegar brúargerð og göngustígar við Fláajökul. Bæði verkefnin nýtast sem fyrstu áfangar inn í Jöklaveginn, gönguleið meðfram suðurhlið Vatnajökuls. Nánari lýsing á verkefnunum er hér fyrir neðan.

 

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða er ætlað að styðja við uppbyggingu, viðhald og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða á náttúruverndarsvæðum, að tryggja öryggi ferðamanna, vernda náttúru landsins og fjölga viðkomustöðum ferðamanna. Þessi úthlutun var sú fyrsta af þremur á þessu ári. Næstu þrjú ár munu stjórnvöld veita 500 milljón króna árlegt framlag í sjóðinn.

 

Sjá hér lýsingu á verkefnum sem hlutu styrk.

Sjá hér frétt um styrkveitinguna á vef Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Sjá hér frétt um styrkveitinguna á vef Ferðamálastofu.

 








BB

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica