Fréttir
Undirskrift
Undirskrift

01.02.2013 Fréttir

Samningur um eflingu ferðaþjónustu í Ríki Vatnajökuls

 

Mikilvægt skref var stigið í eflingu ferðaþjónustu í Ríki Vatnajökuls þegar samningur var undirritaður í síðustu viku um fjárframlag sveitarfélagsins til ráðningar á Verkefnisstjóra vöruþróunar og rannsókna í Ríki Vatnajökuls.

 

Um nýtt starf er að ræða og verður verkefnisstjórinn sameiginlegur starfsmaður Ríkis Vatnajökuls og Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Hornafirði. Starfssvið hans felst annars vegar í vöruþróun og verkefnum á vegum Ríkis Vatnajökuls, og hins vegar í rannsóknum á ferðaþjónustu á vegum Rannsóknarsetursins.

 

Ferðaþjónusta hefur verið í örum vexti undanfarin ár og er nú önnur stærsta atvinnugreinin í sveitarfélaginu. Einn starfsmaður hefur verið hjá Ríki Vatnajökuls og með hálfu starfsgildi í viðbót er betur hægt að nýta þau tækifæri sem sterkari ferðaþjónusta skapar. Rannsóknir eru forsenda markvissrar uppbyggingar í ferðaþjónustu og þegar hálft starfsgildi bætist við Rannsóknarsetrið eykst geta stofnunarinnar til að gera rannsóknir á ferðaþjónustu í Ríki Vatnajökuls. Ennfremur næst þarna fram mikilvæg samþætting á vöruþróun og rannsóknum sem eykur samkeppnishæfni Ríkis Vatnajökuls gagnvart öðrum landsvæðum.

 

Starfið verður auglýst á næstu vikum. Ráðið verður í starfið til árs til að byrja með.

 

 

 

 

 

 

 

BB

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica