Fréttir
Endurskinsmerki
Endurskinsmerki
Mynd: Umferðarstofa

30.01.2013 Fréttir

Börn þurfa endurskinsmerki bæði á fötum og á hjólum

Forvarnir í umferðinni

Þar sem veður hefur verið ansi milt undanfarið hér í sveitarfélaginu hafa börn verið dugleg að hjóla og ganga í og úr skóla og er það af hinu góða.

Þar sem ennþá er ansi dimmt á morgnana og mikið myrkur sem fylgir þessu veðurfari vill Skóla- íþrótta- og tómstundanefnd beina þeim tilmælum til foreldra og forráðamanna barna að börnin séu með endurskinsmerki bæði á fötum og á hjólum. Of mikið er um að hjólreiða- og göngufólk sjáist illa í myrkrinu og skapar það mikla slysahættu.

Sömu tilmælum vill nefndin beina til forsvarsmanna Umf. Sindra, að hlaupahópar á þeirra vegum séu klæddir í endurskinsvesti.

- Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica