Fréttir
FAS_Krimmi
FAS_Krimmi
Æfing á leikritinu Krimma eftir Michael Green (@FAS]

30.01.2013 Fréttir

FAS og LH ætla að setja upp söngleik

Frá uppsetningu á Krimma vorið 2011. Leikfélag Hornafjarðar og Leikhópur FAS hafa tekið saman höndum eins og svo oft áður og ætla að vinna saman að uppsetningu á söngleik nú á vordögum.

Leikstjórinn Stefán Sturla Sigurjónsson hefur verið ráðinn og mun hann koma til Hafnar í lok febrúar. Gert er ráð fyrir að æfingatímabilið standi yfir í um sex vikur og frumsýnt verði um miðjan apríl.
Í gær var haldinn fyrsti kynningarfundur vegna verkefnisins. Þar hittust hæfileikaríkir einstaklingar á öllum aldri sem hlakka til að takast á við nýtt og krefjandi verkefni.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í uppsetningunni eru hvattir til þess að hafa samband við Söndru Björgu hjá FAS eða Kristínu Gests hjá LH. Allir eru velkomnir, hvort sem þeir hafa áhuga á búningahönnun, tónlist, söng, dansi, leikmyndagerð eða hverju öðru sem viðkemur uppsetningu á leikverki.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica