Fréttir
Undirritun sala fjarskiptakerfis
Undirritun sala fjarskiptakerfis
Hjalti Þór og Stefán Brandur við undirritun kaupsamnings.

25.01.2013 Fréttir

Sveitarfélagið kaupir fjarskiptakerfi Martölvunnar

Gengið var frá kaupum Sveitarfélagsins Hornafjarðar á fjarskiptakerfi Martölvunnar þann 24. janúar.  Um er að ræða kerfi sem Martölvan setti upp til að þjónusta íbúa í dreifbýli. 

Í kjölfar kaupanna mun sveitarfélagið leggja í frekari uppbyggingu á fjarskiptakerfi með það að markmiðið að tryggja íbúum í dreifbýli sambærilegt eða betra netsamband og í þéttbýli. 

Sveitarfélagið mun yfirtaka rekstur kerfisins eigi síðar en 1. apríl en þangað til mun Martölvan tryggja þjónustu um kerfið.  Við yfirtöku kerfisins mun verða leitast við að notendur verði fyrir sem minnstu raski á netsambandinu.

Á næstunni verður boðað til opins fundar um næstu skref í verkefninu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica