Hornafjörður kemur vel út úr samanburði
Samkvæmt úttekt DV á gjaldskrám 17 stærstu sveitarfélaga landsins þann 16. janúar sl. kemur Hornafjörður vel út úr samanburði.
Í úttektinni kemur meðal annars fram að að Sveitarfélagið Hornafjörður er með lægstu leikskólagjöldin eða 25.148 kr. Reykjavík kemur næst á eftir með 25.880 kr.
Frístundakortin eru með þeim hagstæðustu á Hornafirði eða 20.000 á barn en fjögur sveitarfélög eru með hærri upphæð. Sex sveitarfélög eru ekki með niðurgreiðslu á frístundum til barna.
Eins og áður hefur komið fram eru skólamáltíðir mjög ódýrar á Hornafirði eða 300 kr. sem er næst lægst miðað við þau sveitarfélög sem voru í samanburðarhópinum. Systkinaafsláttur í leikskóla er einnig með þeim hæstu eða 50%.
Það má því draga þær ályktanir að Hornafjörður er í fremstu röð hvað varðar gjöld og styrki til barnafjölskyldna.
Sorphirða og fráveita eru einnig í lægsta þrepi og fermetraverð á húsnæði er afar hagstætt. Á Hornafirði er lagt á hámarksútsvars, eins og víðast hvar annar staðar, eða 14,48 %.
Samanburðartafla á átta sveitarfélögum.
| Hornafjörður | Reykjavík | Garðabær | Akureyri | Árborg | Vestmannaeyjar | Ísafjörður | Fljótsdalshérað | |
| Leikskólagjöld | 25.148 | 25.880 | 35.160 | 38.870 | 32.440 | 31.532 | 28.156 | 33.660 |
| Skólamáltíð | 300 | 330 | 428 | 371 | 319 | 365 | *1 | 425 |
| Frístundakort | 20.000 | 25.500 | 27.500 | 10.000 | 10.000 | - | *2 | *3 |
| Systkinaafsl.% | 50 | 75 | 50 | 30 | 25 | 50 | 30 | 25 |
| Útsvar % | 14,48 | 14,48 | 13,66 | 14,48 | 14,48 | 14,48 | 14,48 | 14,48 |
| Fermetraverð | 103.405 | 234.292 | 245.686 | 179.705 | 137.521 | 140.302 | 110.486 | 140.120 |
*1 8.100 á mánuði.
*2 Boðið upp á að börn æfi óþróttir hjá aðildarfélögum héraðssambandsins og íþróttafélögum með minni kostnaði.
*3 Heimilt að greiða tekjulágum foreldrum frístundastyrk.
Heimildir, DV 16. janúar 2013.
BB





Skrifa athugasemd