Evrópustofa á Hótel Höfn
Evrópustofa, upplýsingamiðstöð ESB á Íslandi, efnir til opins fundar um Evrópumál á Hótel Höfn, miðvikudaginn 16. janúar frá kl. 17:15-18:15 og eru allir velkomnir.
Á fundinum mun sendiherra ESB á Íslandi, Timo Summa, fjalla um stöðuna innan Evrópusambandsins og gang mála í aðildarviðræðunum við Ísland og svara spurningum. Sendiherrann mælir á ensku en boðið verður upp á endursögn á íslensku.
Þá kynnir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra Evrópustofu, starfsemi upplýsingamiðstöðvarinnar sem tók til starfa í Reykjavík í janúar 2012 og á Akureyri í vor.
Hvað viltu vita?
Fundurinn á Höfn er liður í áformum Evrópustofu að stuðla að aukinni umræðu, þekkingu og skilningi á eðli og starfsemi ESB. Í því skyni er m.a. efnt til kynningar- og umræðufunda víðsvegar um landið með sendiherra ESB og hafa fundir verið haldnir á Akureyri, Egilsstöðum, í Neskaupstað, Reykjavík, Ísafirði og á Reykjanesi. Fleiri fundir eru fyrirhugaðir á næstunni.





Skrifa athugasemd