Málþing hjá Lærdómssamfélaginu
Málþing hjá Lærdómssamfélaginu. Í dag hittist starfsfólk allra skólastiga í Sveitarfélaginu Hornafirði í Nýheimum.
Rætt var um grunnþætti menntunar á öllum skólastigum. Málþingið er liður í Sprotaverkefninu Lærdómssamfélagið Hornafjörður sem hófst síðast liðið haust. Um leið og verkefnið hófst voru myndaðir sex hópar eða einn hópur um hvern grunnþátt. Hóparnir hafa fundað reglulega.
Fyrir réttu ári síðan var haldinn sambærilegur fundur í Nýheimum þar sem m.a. var fjallað um sameiginlega þætti í almennum hluta námskrár á öllum skólastigunum og var sá fundur í raun kveikjan að þessu verkefni.
Á fundinn í dag komu um 120 manns. Fyrst var unnið í tólf hópum og þurfti hver hópur að fjalla um ákveðna grunnþætti. Í lokin kynntu talsmenn grunnþáttanna helstu áhersluatriði. Verkefnið Lærdómssamfélagið Hornafjörður telst nú hálfnað en hóparnir sem hófu starf í haust munu starfa til vors.
Á fundinum í dag lýstu margir ánægju sinni með verkefnið og telja að það sé til mikilla bóta að öll skólastigin starfi saman. Jafnframt lýstu margir áhuga á því að þessi samvinna haldi áfram og verði jafnvel aukin.
www.fas.is





Skrifa athugasemd