Fréttir
MMH_Wild
MMH_Wild
Heimsókn frá Lettlandi

11.01.2013 Fréttir

Heimsókn frá Lettlandi

Næstu vikur eiga Hornfirðingar og sér í lagi Hafnarbúar eftir að verða varir við Lettneska listhópinn The Swufu's. Hópurinn dvelur við æfingar í tvær vikur og er koma þeirra hluti verkefnis Keðju sem sveitarfélagið tekur þátt í. 

Á Íslandi eru það Egilsstaðir og Hornafjörður sem eru þátttakendur í verkefninu.  Nemendur Listaháskóla Íslands heimsóttu Höfn 2012 og voru hér í viku.  Reynslan af þeirri heimsókn var góð. Wilderness verkefnið gefur Hornafirði áhugaverða möguleika á að verða þátttakandi á alheimssviði lista og færa menningarstarfið á svæðinu inná nýjar og ókannaðar lendur. 

Keðja byggir á þeirri sannfæringu að hið víðfema svæði Norðurlanda og Eystrasaltsríkja bjóði upp á einstakar upplifanir og óþrjótandi uppsprettu hugmynda fyrir listafólk. Hugmyndin er að færa jaðarsvæði inn í kastljós sviðslistanna, leggja sitt af mörkum til eflingar byggðaþróunar og gera fámennum byggðalögum kleift að verða þátttakendur í heimi sviðslista.  Verkefnið gerir listafólki kleift að vinna nærri óbyggðum (wilderness), auðga sitt listræna ferli, vinna að skýru listrænu verkefni og um leið leggja af mörkum til þess byggðalags sem þau dvelja í. Það er í raun krafan að baki vali listhópa, að þau vilji vera í ríku og fjölbreyttu samtali og samvinnu við íbúa. 

Þátttaka í verkefninu gefur okkur hér í Ríki Vatnajökuls færi á að ná til áhugaverðs hóps listamanna sem leitar eftir dvöl til lengri tíma og getur nýtt aðstöðu sem annars er ónotuð yfir lágönnina í ferðaþjónustu.  Um leið og við hér á Menningarmiðstöðinni undurbúum komu hópanna viljum við í samvinnu við í Ríki Vatnajökuls markaðssetja svæðið fyrir listamenn og hópa sem vilja koma til lengri dvalar.  Við viljum nýta okkur þátttöku í þessu verkefni til að koma Hornafirði á heimskort listamanna sem stað þar sem gott er að koma, vinna og sækja sér innblástur í stórfenglegri nátttúru og blómlegu mannlífi.

Við komum til með að segja frá heimsókninni og þeim verkefnum sem listamennirnar taka sér fyrir hendur hér á vefnum. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um verkefnið á www.kedja.net/wilderness

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica