Vélgæslunámskeið í FAS
Föstudaginn 4. janúar hófst vélgæslunámskeið í FAS. Hér er um að ræða 85 tíma námskeið og er það bæði bóklegt og verklegt.
Námið er í höndum Magnúsar Hreinssonar og fer kennsla á bóklega hlutanum fram í FAS en verklegi hlutinn fer fram í Tækniskólanum í Reykjavík. Námið veitir réttindi til að verða vélavörður á skipum sem eru með 750 kW vél eða minni og 12 metrar eða styttra að lengd.
Nemendur eru 10 og allir nema einn frá Hornafirði. Námslotan í Tækniskólanum verður 11. - 12. janúar og náminu lýkur 19. janúar. Skólinn er ánægður með aðsóknina á námskeiðið og finnst ánægjulegt að geta boðið upp á þessa þjónustu.
www.fas.is





Skrifa athugasemd