Fréttir
FAS í Gettu betur
FAS í Gettu betur
Lið FAS skipa Jón Guðni Sigurðsson, Jónatan Magni Ágústsson og Júlían Bent Austar Egilsson (MYND FAS)

08.01.2013 Fréttir

FAS í Gettu betur

Gettu betur lið FAS 2013. Nú er Gettu betur spurningakeppni framhaldsskólanna að fara aftur af stað en fyrstu viðureignirnar verða í útvarpi í kvöld. Næsta fimmtudag mun lið FAS keppa við lið Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

Lið FAS að þessu sinni skipa þeir Jón Guðni Sigurðsson, Jónatan Magni Ágústsson og Júlían Bent Austar Egilsson og eru þeir Jón Guðni og Júlían nýir í liðinu. Strákarnir hafa undirbúið sig fyrir keppnina frá því í byrjun nóvember og það er Hlíf Gylfadóttir sem hefur séð um að þjálfa liðið.

Eins og áður sagði keppir liðið á fimmtudaginn og hefst viðureignin klukkan 20:30. Um leið og við óskum strákunum góðs gengis hvetjum við alla til að setjast við útvarpstækin og fylgjast með viðureigninni

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica