Skólastarf hafið í FAS á nýrri önn
Skólasetning í janúar 2013. Á föstudag í síðustu viku hófst skólastarf aftur í FAS að afloknu jólafríi. Skólasetning var klukkan 10 og strax þar á eftir var nemendafundur það sem lögð voru drög að starfsemi félagslífs á vorönninni.
Klukkan 11 var umsjónarfundur þar sem nemendur fengu m.a. stundatöflur. Það er alltaf nokkuð um að nemendur þurfi eða vilji breyta vali sínu. Mikilvægt er að ganga frá töflubreytingum sem fyrst. Síðasti dagur til að skrá sig í áfanga eða breyta áfangaskráningum er 11. janúar næst komandi.
Kennsla hófst svo samkvæmt stundaskrá mánudaginn, 7. janúar og þá fer allt á fulla ferð í skólastarfinu. Það er því um að gera að fara að tína til skóladótið og ganga glaður mót hækkandi sól.
www.fas.is





Skrifa athugasemd