Jólatrén hirt á mánudag
Næsta mánudag og þriðjudag verður farið um Höfn og Nesjahverfi til að hirða upp jólatré.
Fólk er beðið um að setja trén út við gangstétt og ganga þannig frá að þau fjúki ekki. Þeir sem það vilja geta komið með trén í endurvinnsluportið á opnunartíma. Í leiðinni er fólk hvatt til að taka upp leifar af flugeldum og koma þeim í portið.
Gleðilegt ár og takk fyrir það liðna.
Strákarnir í portinu. (Stebbi og Leifur)





Skrifa athugasemd