Skötuævintýri á Hótel Höfn á Þorláksmessu
Fyrir margan íslendinginn er skötuát á Þorláksmessu jafn heilagt og hangikjötið er á jólunum. Að venju býður Hótel Höfn uppá skötuveislu í efri sal á Þorláksmessu.
Það er meistarakokkurinn Halldór Halldórsson sem rekur Pakkhúsið við Höfnina sem hefur gengið til liðs við þá félaga Óðinn og Gísla á Hótel Höfn við undirbúning skötuveislunnar. En eins og allir vita þá starfaði hann á Hótel Höfn áður en hann hóf rekstur í Pakkhúsinu.
Að sögn Halldórs þá verður boðið uppá kæsta skötu, tindabikkju, saltfisk, plokkfisk og hrísgrjónagraut. Þá kemur allt hráefni héðan heim úr héraði og segir hann skötuna í ár vel kæsta og algert góðgæti.
Þeir sem ekki eru fyrir Skötuna geta fari á pizzahlaðborðið í neðri salnum.
Veislan hefst kl.11:30 og stendur til 13:30.





Skrifa athugasemd