Fréttir
Knatthus
Knatthus

21.12.2012 Fréttir

Skinney Þinganes gefur íbúum Hornafjarðar knatthús

Laugardaginn 22. desember, verður nýtt fjölnota knatthús á Höfn í Hornafirði  vígt við hátíðlega athöfn.  Húsið er gjöf frá fyrirtækinu Skinney-Þinganesi til sveitarfélagsins og íbúa héraðsins.

 Á 60 ára afmæli fyrirtækisins árið 2006 ákváðu eigendur að leggja stórt framlag til íþróttamála og skilyrtu framlagið að byggt yrði  knatthúss með gervigrasi.

Ljóst er að gífurlegur aðstöðumunur verður fyrir knattspyrnufólk að stunda æfingar og sömuleiðis fyrir alla sem vilja stunda holla hreyfingu í skjóli frá roki og rigningu. Nýja húsið er rúmlega 4.000 fermetrar og rúmlega 42.000 rúmmetrar.

Mikil stemming hefur skapast á Hornafirði fyrir húsinu og nafnasamkeppni sett af stað þar sem verðlaun eru gefin fyrir þann sem á vinningstillöguna, 190 tillögur bárust til nefndarinnar.  

Sérstök athöfn verður á laugardaginn þar sem nafnbirtingin verður gerð kunn, ýmis skemmtiatriði, Big band, Karlakórinn Jökull og Harmonikkubræður. Víxla knatthússins fer formlega fram kl.12:00 með  ávörpum  frá fulltrúum Skinney Þinganes og sveitarfélagsins.

Þá verður hamborgarveisla og íbúar fá að taka þátt í knattleikjum fram eftir degi.

Allir eru velkomnir.

 

 

BB

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica