Haustið í Austurbrú
Þann 1. júní 2012 sameinaðist Þekkingarnet Austurlands fleiri stofnunum á Austurlandi undir merkjum Austurbrúar, og hér í Hornafirði starfar það enn með svipuðu sniði og áður í Nýheimum.
Sú breyting varð þó á að á haustdögum tók Árdís Erna Halldórsdóttir við starfi verkefnastjóra Austurbrúar, en því hafði Ragnhildur Jónsdóttir áður sinnt frá stofnun Þekkingarnetsins árið 2006. Að sögn Árdísar þá leggst nýja starfið vel í hana, enda er það fjölbreytt, líflegt og skemmtilegt, „ég er líka svo heppin að hafa hana Nínu Sibyl hérna áfram, en hún er öllum hnútum kunnug í starfi Þekkingarnetsins sem var ómetanleg hjálp fyrir mig við að kynnast nýjum starfsvettvangi.“
Líflegt hefur verið í haust á fyrsta starfsári Austurbrúar á Höfn, en í boði hafa verið fjölmörg námskeið fyrir leikna og lærða líkt og heimamenn þekkja frá starfsemi Þekkingarnetsins undanfarin ár. Unnin var símenntunaráætlun fyrir sveitarfélagið til næstu þriggja ára og er nú verið að framfylgja henni. Það var byrjað með trukki í september þegar Edda Björgvins mætti og hristi laglega upp í starfsmönnum sveitarfélagsins með hressu erindi um mikilvægi gleði og húmors í vinnunni. Fleiri námskeið fylgdu í kjölfarið og verður nokkuð þétt dagskrá í áætluninni fram á vor.
Fastur liður í þjónustu Austurbrúar er íslenskukennsla fyrir útlendinga, og nú verður einnig sú nýbreytni að boðið verður upp á íslenskukennslu á vinnustað. Um tilraunaverkefni er að ræða, en til þess fékkst styrkur frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu og verður verkefnið unnið í vetur í samstarfi við Skinney-Þinganes. Annar fastur liður eru vikuleg námskeið í dagvist fatlaðra í umsjón Nínu, en þar hefur hún m.a. leiðbeint við skreytingagerð, listmálun og farið í vettvangsferðir um nágrenni Hafnar. Hafa þessi námskeið gefist mjög vel enda eru þau fjölbreytt og skemmtileg.
Almennu námskeiðin voru vel sótt að vanda en má þar meðal annars nefna námskeið í excel og spænsku. Á meðal nýjunga var námskeið í fatasaum sem Ragnheiður í Millibör hafði veg og vanda að, auk þess sem Stefán Haukur Erlingsson útskurðarmeistari dvaldi eina helgi í Hornafirði og kenndi fyrir okkur á byrjendanámskeiði í útskurði. Á vorönn verða fjölmörg spennandi námskeið í boði og má þar til dæmis nefna ostagerð og bókmenntanámskeið þar sem bækurnar „Karitas án titils“ og „Óreiða á striga“ verða ræddar. Það er alltaf skemmtilegt að geta boðið upp á ný og spennandi námskeið, en það er einungis mögulegt því að Hornfirðingar er svo duglegir að sækja þau! Vonum við að svo verði enn og ef það eru óskir um sérstök námskeið hafið þá endilega samband við okkur. Upplýsingar um næstu námskeið verða í námsvísi vorannar sem kemur út fljótlega eftir áramót, sem og á heimasíðu Austurbrúar. Eins minnum við á að hér í Nýheimum er mjög góð aðstaða fyrir nemendur í fjarnámi til að sinna sinni vinnu. „Nú í desember er alveg sérstök stemmning í húsinu þar sem jólaprófin eru algleymingi og þó ég sé mjög ánægð með að hafa lokið mínu námi, þá er tilfinningin við að skila inn síðasta jólaprófinu eitthvað sem ég sakna alltaf svolítið. Ég hlakka til að upplifa hana í gegnum fjarnemana hjá okkur í ár“ bætir Árdís við að lokum.




Skrifa athugasemd