Jólakveðjur á SkjáVarpi og Ríkinu
Eins og undanfarin ár verða jólakveðjur á SkjáVarpi og hér á vefnum þar sem fyrirtækjum, einstaklingum og fjölskyldum geta nýtt sér SkjáVarp og Ríki Vatnajökuls til að koma kveðju sinni á framfæri.
Jólakveðjurnar eru fyrir löngu orðnar hluti af jólunum hjá mörgum í Sveitarfélaginu á sama hátt og lestur jólakveðja í útvarpinu hefur verið á landsvísu. Kveðjurnar birtast á dreifikerfi SkjáVarps undir ljúfri jólatónlist og hér á vefnum í beinni útsendingu á Þorláksmessukvöld, aðfangadag og jóladag. Kveðjunum er svo breytt í nýárskveðjur og sendar út á gamlársdag og nýársdag. Kveðjurnar birtast með fallegri mynd úr sveitarfélaginu í bakgrunn. Þökkum við öllum þeim ljósmyndurum sem hafa látið okkur í té myndir, en auk ljósmyndara vefsins þá eiga m.a. Óðinn Eymundsson, Hlynur Pálmason, Steinar Garðarsson, Einar Björn Einarsson Daníel Imsland og Stefán Ólafsson myndir sem birst hafa. Er myndefnið óþrjótandi enda er náttúrufegurðin hér hvergi meiri.
Ákveðið var að hafa sama verð og hefur verið undanfarin ár fyrir þ.e. 2800 krónur fyrir kveðjuna (birtist í 5 daga).
Hægt er að panta kveðju hér





Skrifa athugasemd