Jólagestur - Amor Pepito Mantilla
Amor kom til Íslands árið 2005 frá Filippseyjum. Móðursystir hennar bjó hér á landi og fannst Amor kjörið tækifæri að skoða sig um í heiminum. Í Filippseyjum er menntun mjög dýr, því ákvað Amor að mennta sig hér á landi og útskrifaðist sem sjúkraliði frá Framhalsskóla Austur – Skaftafellssýslu fyrir nokkru. Hún starfar á Heilbrigðisstofnun Suð - Austurlands og á eina dóttur hana Zoilu Ýr en eiginmaður Amor býr ennþá út í Filippseyjum.
Amor er alin upp í Cebu sem búa um fjórar milljónir manns. Flestir í Filippseyjum tilheyra Rómversk Kaþólsku kirkjunni og eru það áhrif frá því að landkönnuðurinn Magellan kom til landsins og kristin áhrif urðu mjög áberandi. Trúin er mjög ríkur þáttur í daglegu lífi fólks og jafnframt hefur margar hefðir í Flippísku samfélagi sem rekja má til sögulegs samhengis. Mikið af siðum koma frá Ameríku bæði matarmenning og ekki hvað síst siðir í sem tengjast jólaundirbúningnum.
Jólin eru langstærsta trúarhátíð landsins ásamt páskum og fara þau að minna á sig mun fyrr en hér á Íslandi. Strax í september eru jólatrén sett upp bæði á heimilum og úti í samfélaginu. Trén eru yfirleitt greinar sem skreyttar eru með silkipappír og jólaskraut hengt á þær. Það getur orðið mikil samkeppni á milli fólks hver hafi fallegustu skreytingarnar. Jólatónlist, gjafir og ljós eru einnig áberandi og í miðborginni er sett upp geysistórt jólatré og þangað kemur fólk með skreytingar. Amor gat ekki setið á sér að setja upp jólatréð á sínu heimili í október og mörgum fannst það skrýtið. Jólasveinninn var ekki mikið áberandi í æsku Amor og hann er aðallega úti og börnin hitta hann. Sinn er siður í landi hverju og það er gaman að sjá hvað er líkt og ólíkt á milli landa.
Tíu dögum fyrir jól eru næturmessur fram á aðfangadag. Ef þú sækir þær allar getur þú óskað einhvers og átt von á að ósk þín rætist frekar en aðrar óskir. Þegar aðfangadagur gengur í garð er mikið um dýrðir sem byrjar á því að haldið er til messu klukkan tíu um kvöldið. Jólamáltíðin er um miðnætti sem er matur bæði sem þekkist vel hér á Íslandi eins og svínasteik og svo hrísgrjónaterta og ýmsan mat að asískri matarhefð. Jólapakkarnir eru opnaðir jafnóðum og þeir berast allan desembermánuð svo það er ekkert verið að bíða eftir því. Þegar jólin eru gengin í garð er stór flugeldasýning og fólk skemmtir sér langt fram á morgni jóladags. Jóladagur er svo haldinn hátíðlegur en þó eru allar verslanir opnar en þó eru allir þeir sem vinna hjá hinu opinbera í fríi yfir jólahátíðina eða fram á 3. janúar. Um áramótin er einnig mikil gleði en formleg lok jólahátíðarinnar er ekki fyrr en nýtt ár hefst samkvæmt kínverska tímatalinu eða í lok janúar eða byrjun febrúar.
Á Íslandi heldur Amor jól á heimili frænku sinnar og hennar eiginmanni að íslenskum sið. Henni finnst það bara spennandi að þurfa að bíða eftir að opna pakkana og leyfir íslensku jólasveinunum að heimsækja Zoilu Ýr. Það hefur einnig mikla þýðingu að nú er komin Kaþólsk kirkja hér á Höfn og hægt að fara til messu í eigin kirkju. Það má því segja að jólin hennar Amor hafi hefðir víða að úr mörgum heimsálfum og allar eiga vel saman enda inntak jólanna sem skiptir mestu máli.
Magnhildur Björk Gísladóttir
BB





Skrifa athugasemd