Fréttir
Sessilía Sól
Jólagestur Sandra Sigmundsdóttir
Dóttir Söndru Sessilía Sól

20.12.2012 Fréttir

Hver man ekki eftir jólagestunum

Á árunum 2004 til 2010 var fastur liður hér á vefnum frá 1. des. til jóladags sem bar heitið jólagestir.

Án efa var það eitt það vinsælasta efni sem verið hefur hér á vefnum og það var ekki bara fólkið hér á svæðinu sem fylgdist með jólagestunum okkar því við fréttum af  fólki  víða um heim sem fylgdist með þessum þáttum. Frásagnir jólagestanna voru m.a lesnar jafnóðum og þær birtust fyrir fólkið sem  dvaldi í dagvistum hér í bænum og ýmsa fleiri sem ekki gátu nýtt sér tölvutæknina.

Vegna fyrirspurna um hvar sé hægt að nálgast greinarnar þá höfum við sett flýtihnapp hér að neðan sem ber heitið Jólagestir. Samtals eru þetta 168 greinar hver annarri betri en þær hafa þær að geyma frásagnir af jólahaldi ýmissa Hornfirðinga fyrr og nú. Greinarnar enda síðan á góðum jólauppskriftum sem vert er að prufa.

 Njótið hér

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica