Starfsemi NemFAS á haustönn
Annáll
Veiðiferð í Þveitina. Nemendafélag FAS hélt uppteknum hætti þessa önnina og starfaði áfram í mörgum mismundandi klúbbum.
Á skólasetningunni í ágúst voru stofnaðir 11 klúbbar með tæplega 90 meðlimum. Á önninni voru haldnir um 30 viðburðir og því margt í boði fyrir nemendur FAS. Í meðfylgjandi skjali má sjá samantekt um starfið í vetur.
Nokkuð góð reynsla er nú komin á klúbbastarf nemendafélags FAS og ljóst er að hið breytta fyrirkomulag hentar nemendum vel. Félagið er mun sýnilegra en áður og viðburðum hefur fjölgað til muna. Það má því með sanni segja að Nemendafélag FAS og meðlimir þess séu á réttri braut og vonandi heldur starfið áfram að blómstra á komandi misserum.
FAS Starfsemi haust 2012 (pdf)
www.fas.is





Skrifa athugasemd