Nýtt hjá Strætó bs. engar pantanir og ný biðstöð
Frá og með 6. janúar þarf ekki lengur að panta fyrirfram Strætó frá Hornafirði.
Leið 51 ekur áfram milli Víkur og Hafnar á þriðjudögum, föstudögum og sunnudögum líkt og áður. Eini munurinn er að það þarf ekki að panta far með Strætó.
Frá áramótum verður biðstöð Strætó á Höfn við Sundlaug Hafnar, Víkurbraut 9, þar sem miðasalan er í dag.
BB





Skrifa athugasemd