Eldvarnarátak í eldvarnarviku
Eins og undanfarin ár hafa slökkviliðin í landinu staðið fyrir eldvarnarátaki um landa allt, þar sem slökkviliðsmenn heimsækja átta ára börn í grunnskólum landsins og fræða þau um eldvarnir heima. Slökkviliði Hornafjarðar tók þátt í verkefninu og heimsótti nemendur og starfsfólk í Hafnarskóla þar sem þau voru frædd um eldvarnir og öryggismál. Þeim var gefin kostur á að taka þátt í eldvarnagetraun landsambandsins.
Eldvarnabandalagið hefur gefið út ítarlega handbók um eldvarnir heimilanna og hefur henni verið dreift í verulegu upplagi. Handbókin hefur að geyma ítarlegar upplýsingar um eldvarnir heimilanna, hægt er að finna þennan bækling á heimasíðu eldvarnareftirlitins http://www2.hornafjordur.is/media/stjornsysla/Eldvarnir---handbok-heimilisins.pdf.
Í fyrra var gefin út ítarleg neyðaráætlun um rýmingaráætlun fyrir Hafnarskóla sem unnið verður eftir. Í neyðaráætluninni er greint frá leiðum til þjálfunar starfsmanna og nemenda við að vinna ákveðin verk sem framkvæma þarf ef eldsvoði kemur upp. Áætlunin byggir á að aðstoða við rýmingu, taka virkan þátt í rýmingu, slökkva elda, veita fyrstu hjálp ef þörf krefur, auk annarra verka sem falla innan neyðaráætlunarinnar. Í morgun fór slökkviliðið í Hafnarskóla og rýmdi skólann samkvæmt þeirri rýmingaráætlun sem gefin var út, og má segja að allt hafi gengið upp og tóku nemendur og kennarar virkan þátt í rýmingunni. Markmiðið er að starfsfólk skólanna verði betur meðvitað um brunavarnir og neyðaráætlun á sínum vinnustað.
Rétt er að benda á nauðsyn þess að hver og einn skoði sinn reykskynjara og læt ég fylgja með þessari grein nokkrar haldgóðar upplýsingar um hann.
„Reyksskynjari virkar með rafhlöðum en hann þarf að prufa reglulega, alls ekki sjaldnar en einu sinni í mánuði. Það er gert með því að styðja fingri á prófunarhnappinn þar til viðvörunarmerki heyrist. Ef stutt hljóðmerki heyrast frá reykskynjaranum á um það bil mínútu fresti þarf að endurnýja rafhlöðuna. Endurnýja þarf rafhlöðuna að minnsta kosti árlega og er gott að gera það alltaf á sama tíma, t.d. í byrjun aðventu. Nauðsynlegt er að prófa skynjarann þegar skipt hefur verið um rafhlöðu. Líftími reykskynjara er áætlaður u.þ.b. 10 ár“
Borgþór Freysteinsson
Eldvarnarfulltrúi
Slökkvilið Hornafjarðar
BB





Skrifa athugasemd