Fréttir
bjorgunarskip_3
bjorgunarskip_3
Björgunarskipið Ingibjörg

12.12.2012 Fréttir

Björgun flutningaskipsins Ölmu

Á bloggsíðu Hjalta Þórs Vignissonar bæjarstjóra kemur fram að ef ekki hefði verið fyrir áhöfn Björns Lóðs hefði flutningaskipið Alma lent upp í fjöru þegar það misti stýrið fyrir utan Hornafjarðarós.

Áhöfnin lagði sig í hættu við erfiðar aðstæður. Bjargaði Ölmu og áhöfn þess úr bráðri hættu og kom í veg fyrir stórfellt eignatjón og jafnvel umhverfisslys ásamt áhöfninni á björgunarskipinu Ingibjörgu. Engir aðrir sem nálægir voru gátu það. Fyrst byrjað er að segja fréttir af þessu afreki þá finnst mér sárt þegar einni útgerð af þremur sem komu að þessu máli er lyft yfir aðra sem að máli komu. Þannig mátti túlka frétt RÚV í kvöld. Hið rétta er að útgerðirnar komust að samkomulagi þar sem menn sættust á skiptingu eftir ákveðnum forsendum. Sú leið var valinn umfram dómstólaleiðina sem kom fyllilega til greina af hálfu útgerðar Björns Lóðs. Í samkomulagi við áhöfn Björn Lóðs var niðurstaðan að ganga að samningum.

http://www.hjaltithor.is/

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica