Sparisjóðurinn úthlutaði úr Styrktar og menningarsjóði
Sparisjóðurinn úthlutaði árlegum styrkjum úr Styrktar og menningarsjóði þann 29. nóvember síðastliðinn
Sparisjóðurinn úthlutaði úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja, í fimmta skipti þann 29. nóvember s.l.
Við hittumst hér í sparisjóðnum á Höfn og áttum góða stund saman. Dagskráin var þannig að 2 ungir hljóðfæraleikarar, Þorkell Ragnar og Ármann Örn, léku fyrir okkur á hljómborð og gítar, meðal annars frumsamin lög.
Við afhentum viðurkenningar til 3ja aðila að þessu sinni og einnig skrifuðum við undir áframhaldandi samstarfssamning við Golfklúbb Hornafjarðar til næstu 3ja ára.
Þessir aðilar fengu viðurkenningu og styrk:
Nemendafélag FAS
Skógræktarfélag Djúpavogs
Björgunarsveitin Eining á Breiðdalsvík.
Á eftir var boðið upp á veitingar, snittur og nýlagað kaffi að hætti okkar í sparisjóðnum.




Skrifa athugasemd