Fréttir
Málþing
Málþing
Málþing um staðalímyndir í tónlist hjá FAS (MYND:FAS)

05.12.2012 Fréttir

Málþing um staðalímyndir í tónlist

Í gær var haldið málþing siðfræðinema í FAS. Málþingið er hluti af námsmati í áfanganum og kemur í stað lokaprófs.

Þetta er í annað sinn sem þetta fyrirkomulag er viðhaft. Umræðuefnið að þessu sinni var Tónlist og staðalímyndir en það voru nemendur sem völdu þetta viðfangsefni. Umræðuefnin voru sex talsins. Hver framsaga tók um tíu mínútur og var gert ráð fyrir tíu mínútna umræðum í lok hennar.  Umræðuefnin voru eftirfarandi: Klámvæðing í tónlistarheiminum, Of ungur fyrir sitt eigið myndband, Viltu að börnin þín verði svona?, Er tónlistarbransinn það rétta?, Staðalímyndir í rappi og Dópið gerir tónlistina betri!

Málþingið gekk mjög vel og sköpuðust líflegar og áhugaverðar umræður eftir hverja framsögu. Námsmat fyrir málþingið er að hluta til í höndum nemenda og er það hvoru tveggja í formi jafningamats og sjálfsmats.

Almenn ánægja var með málþingið og líklegt að fyrirkomulagið sé komið til að vera.  

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica