Fréttir
Baekur_verkefni
Baekur_verkefni

04.12.2012 Fréttir

Móðurmálið á plakati

Til að vekja athygli á mikilvægi þess að viðhalda móðurmálinu hefur verið hannað plakat sem leggur áherslu á að mikilvægt er að halda tengslin við uppruna sinn. Villi Magg í Vöruhúsinu sá um hönnunina í samstarfi verkefnisstjóra um málefni innflytjenda.  Að útgáfu þess koma einnig Grunnskóli Hornafjarðar, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Leikskólinn Lönguhólar, Leikskólinn Krakkakot ásamt Hornafjarðarbæ.

Stelpan á plakatinu er hún  Selma Mujkic sem á rætur sínar að rekja til Bosníu og er hún nemandi í 5. E í Grunnskóla Hornafjarðar.  Foreldrar hennar þau Senida og Jasmin  hafa verið búsett á Íslandi um langt skeið og jafnframt á Selma ættingja hér á Höfn því föðursystir hennar er hún Jasminka konan hans Cobers sem hefur þjálfað knattspyrnu hjá Sindra svo lengi sem elstu menn muna.

Á plakatinu er texti á nokkrum tungumálum sem Hornfirðingar af erlendum uppruna sáu um að þýða yfir á sitt móðurmál. Ekki væri verra að fá þessa setningu á fleiri tungumál en þá er bara að senda línu á magnhildur@hornafjordur.is .  Plakatið hefur nú verið hengt upp í Menningarmiðstöðinni, bókasöfnum GH, Lönguhólum og Krakkakoti.

Magnhildur Gísladóttir




BB

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica