Fréttir
Söngvakeppni FAS
Söngvakeppni FAS
Kolbrún Birna og Þórdís Imsland sem sigruðu en þær tóku lagið Skinny Love. (Myndataka: Ólafur Einir)

28.11.2012 Fréttir

Söngkeppni NemFAS og fleiri viðburðir

Föstudaginn 23. nóvember var margt um að vera hjá Nemendafélagi FAS. Eftir að skóla lauk þann daginn hófst undirbúningur fyrir Meistaramót en sá viðburður hefur notið mikilla vinsælda í FAS.

Þar er keppt í ýmsum smáþrautum svo sem kókosbolluáti, skutlugerð og fleiru. Um kvöldið var haldin stórglæsileg söngkeppni í Sindrabæ. Fjögur atriði skráðu sig til keppni og voru þau hvert öðru glæsilegra. Dómnefnd skipuðu Jónína Einarsdóttir, Kristín G. Gestsdóttir, Lovísa Ósk Jónsdóttir og kynnir var Róslín Alma Valdemarsdóttir. Það voru þær Kolbrún Birna og Þórdís Imsland sem sigruðu en þær tóku lagið Skinny Love í útsetningu Birdy þar sem Þórdís lék undir á píanó. Allt utanumhald keppninnar var til fyrirmyndar og sýndu nemendur FAS svo sannarlega hvers þeir eru megnugir.

Kvöldið endaði með dansleik með hinni landsfrægu hljómsveit Á Móti Sól sem lék fram eftir nóttu fyrir nemendur. Til stóð að nemendur frá VA á Neskaupsstað kæmu til Hafnar og skemmtu sér með nemendum FAS. Á síðustu stundu kom babb í bátinn hjá Norðfirðingunum og komust þeir því ekki suður um heiðar að þessu sinni. Vonandi halda samræður nemendafélaganna þó áfram þannig að heimsóknir milli skólanna verði að veruleika.

Kostnaður við dansleik af þessari stærðargráðu er vissulega mikill og mun meiri en aðgangseyrir skilar inn. Hins vegar hafa meðlimir í nemendafélagi FAS haldið fjölda smærri viðburða til að afla tekna, bæði á þessari önn og einnig á síðasta skólaári. Þess vegna gátu nemendur skipulagt stóran og dýran viðburð sem vitað var fyrirfram að myndi ekki standa undir sér. Sýnir þetta að með mikilli samvinnu klúbba og góðu skipulagi getur Nemendafélag FAS boðið meðlimum sínum upp á flest það sem stærri skólar geta gert. Skólinn og bæjarbúar allir mega svo sannarlega vera stoltir af ungmennunum okkar í FAS.

Myndir frá viðburðum Nemendafélagsins má sjá á facebook síðu félagsins www.facebook.com/nemfas

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica