Fréttir
Námsferð til Danmerkur
Námsferð til Danmerkur
mynd: FAS

26.11.2012 Fréttir

Námsferð til Danmerkur

DAN303 er valáfangi í FAS og það eru 10 nemendur í honum. Í september var tekin ákvörðun um  að fara til Danmerkur í námsferð.

Það var flogið út fimmtudaginn 15. nóvember. Eftir að hafa farið með töskurnar upp á hótel og var strax farið að labba um Kaupmannahöfn því það er margt að sjá í þessari fallegu borg. Það var farið á marga staði, og eru margir þeirra mjög merkilegir. Strikið þekkja flestir og þar er alltaf mjög gaman að rölta. Þá var einnig farið á nokkur söfn, komið við fyrir utan hjá Margréti drottningu og ekki má gleyma að segja frá því að það var farið í þessa líka fínu siglingu þar sem hægt var að skoða Kaupmannahöfn frá öðru sjónarhorni. Næst síðasta daginn var svo farið í Tívoli og allir skemmtu sér konunglega þar. Þá fór hópurinn í svokallað fiskafótabað þar sem litlir fiskar fá sér að éta með því að kroppa sigg af löppunum. Það voru reyndar skiptar skoðanir um þá upplifun.

Það var flogið aftur heim til Íslands sunnudaginn 18. nóvember og allir voru dauðþreyttir eftir góða ferð. Það er skemmtileg upplifun að fá að fara í námsferð erlendis og viljum við í DAN303 þakka öllum sem styrktu okkur kærlega fyrir, og takk æðislega fyrir alla hjálpina!

Med mange hilsner,
DAN303

www.fas.is


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica