Fréttir
Kaffihúsakvöld í FAS
Kaffihúsakvöld í FAS
Mynd FAS

23.11.2012 Fréttir

Margt um að vera hjá NemFAS

Þessa vikuna er nóg um að vera hjá nemendafélagi FAS og viðburðir upp á nánast hvern einasta dag. Síðast liðinn þriðjudag stóð tískuklúbburinn fyrir hárgreiðslu- og förðunarnámskeiði með þeim Jónu Margréti og Hrafnhildi.
Stelpurnar lærðu þar ýmis leyndarmál um nýjustu jólagreiðslur og förðun.

Á miðvikudagskvöldið tóku myndalistar- og leiklistarklúbbur sig saman og héldu kaffihúsakvöld í Nýheimum. Þar var heilmikið um að vera en myndlistaklúbburinn sýndi t.d. þau verk sem krakkarnir hafa unnið að í vetur. Leiklistarklúbburinn stóð fyrir Actionary keppni en var þá öllum gestum skipt niður í þrjú lið sem kepptu í leiklist. Var keppnin svipuð þeim leikæfingum sem við þekkjum öll úr Útsvarsþáttunum. Auk þess var keppt í kökubakstri á kaffihúsakvöldinu en gestir máttu mæta með heimabakaða köku og taka þátt í keppninni. Fimm stórglæsilegar og ljúffengar kökur skiluðu sér í keppnina en eftir að dómnefnd hafði lokið störfum máttu gestir kaffihúsakvöldsins gæða sér á þeim.

Viðburðum vikunnar er þó síður en svo lokið þar sem að á föstudaginn verða hvorki meira né minna en þrír viðburðir haldnir á vegum viðburðaklúbbs. Skemmtunin hefst með Meistaramóti í Nýheimum kl.16 þar sem keppt verður í ýmsum þrautum. Síðar um kvöldið verður Söngkeppni FAS haldin í Sindrabæ en sigurvegari þar hlýtur þátttökurétt í Söngkeppni framhaldsskólanna sem haldin verður eftir áramót. Báðir þessir viðburðir eru opnir öllum og eru bæjarbúar hvattir til að taka þátt í gleðinni með krökkunum. Kvöldið endar svo á dansleik með hljómsveitinni Á Móti Sól sem mun skemmta nemendum FAS fram eftir kvöldi.

Sandra Björg 

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica