Fréttir
Þessir leika ekki fyrir dansi! Gísli Már og Óðinn eigendur Hótels Hafnar
Þessir leika ekki fyrir dansi! Gísli Már og Óðinn eigendur Hótels Hafnar

22.11.2012 Fréttir

Jólatapas á Ósnum helgina 7. og 8. desember

Eins og undanfarin ár mun Hótel Höfn standa fyrir jólaveislu þar sem verða á boðstólum margir litlir réttir með íslensku og dönsku ívafi.

Að sögn Gísla Már hótelstjóra þá verða m.a. síldarplattar með rúgbrauði, gæsa confit með rauðlauks sultu, djúpsteikur humar með remolaði, dönsk lifrakæfa með beikoni og steiktum sveppum, kjúklingaspjót chili, saltfiskur á smjörsteiktri snittu, hangikjöt með kartöflumús og heimagerðu rauðkáli og margt fleira - sem sagt stórkostleg jólaveisla og það er enginn annar en Óðinn Eymundsson meistarakokkur mun sjá um að matreiða réttina.  

Nú er um að gera að tryggja sér sæti og panta borð, en það er gert í síma 478 1240

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica