Fréttir
Bartosz-Skrzypkowski
Bartosz-Skrzypkowski

22.11.2012 Fréttir

Bartosz Skrzypkowski ráðinn verkefnisstjóri í Áhaldahúsi

Bartosz Skrzypkowski hefur verið ráðinn sem verkefnisstjóri í Áhaldahúsi. Starfið felst meðal annars í því  að hafa umsjón með viðhaldi, endurbótum og nýframkvæmdum á opnum svæðum auk þess að sinna tilfallandi verkefnum er lúta að viðhaldi gatna, gangstétta og annarra verklegra framkvæmda. 

Bartosz mun einnig sinna ýmsum verkefnum er tengjast lóða- og fasteignamálum hjá sveitarfélaginu, s.s. uppmælingu lóða, gerð lóðarleigusamninga og annast ýmsar mælingar.  Bartosz hefur störf störf þann 1. janúar.

Bartosz útskrifaðist frá Tækniháskólanum í Gdansk með meistaragráðu í byggingarverkfræði vorið 2011 með sérhæfingu í umferða og samgöngumálum.  Samhliða náminu hefur vann Bartosz ýmis verkefni sem snéri að samgöngumálum bæði vegaframkvæmdum og gerð göngustíga.  Jafnframt hefur hann góða reynslu af garðyrkjustörfum.

Fjölskylda Bartosz hefur verið búsett hér um langt skeið en hann fluttist til landsins frá Póllandi strax að loknu námi. Við bjóðum Bartosz velkomin til starfa.



BB

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica