Nýr geisladiskur með Harmonikkubræðrum
Harmonikkubræðurnir Andri Snær og Bragi Fannar hafa nú gefið út geisladisk með sígildum jólalögum
Þetta er í fyrsta skipti sem hér á landi er gefinn út jóladiskur, þar sem þekkt jólalög eru leikin á harmonikkur í fallegum útsetningum og við undirleik þekktra tónlistarmanna.
Andri Snær og Bragi Fannar eru tvíburar, fæddir á Hornafirði 1995. Foreldrar þeirra eru Bára Baldvinsdóttir og Þorsteins Guðmundssonar á Mánabrautinni. Þeir byrjuðu ungir að læra á harmónikkur, fyrst hjá Sigjóni Bjarnasyni á Brekkubæ og síðan hjá Gunnlaugi Þresti Höskuldssyni á Hornafirði. Áhugi þeirra á harmónikkunni er ekki síst að þakka afa þeirra bræðra Baldvini Ragnarssyni sem þeir tileinka þennan disk. Jafnframt því að spila fyrir sig og aðra þá stunda þeir nám við Skipstjóraskólann í Reykjavík þar sem þeir ljúka námi næsta vor.
Geisladiskurinn er tilvalin til þeirra sem vilja hlusta á jólalög leikin á harmonikkur, taka snúning og syngja með. Hægt að nálgast upplýsingar um hvernig hægt er að panta diskinn og hlusta á sýnishorn á Facebooksíðu þeirra með því að "klikka hér"





Skrifa athugasemd