Gerði mér vonir um 4. sætið
Í flokksvali Samfylkingarinnar sem fram fór um síðustu helgi náði Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Hornafirði, 4. sæti.
Árni gaf kost á sér í 2. – 4. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í flokksvalinu. Eins og áður segir þá náði hann kosningu í 4. sæti sem er bindandi kosning. Rúmlega 1.500 flokksfélagar og skráðir stuðningsmenn nýttu kosningarétt sinn í flokksvalinu sem er rétt ríflega 43% kjörsókn. Oddný G. Harðardóttir vann slaginn við Björgvin G. Sigurðsson um 1. sæti og Björgvin endaði í 2. sæti. Arna Ír Gunnardóttir, bæjarfulltrúi í Árborg náði svo 3. sætinu.
Samfylkingin náði þremur þingmönnum í Suðurkjördæmi í síðustu alþingiskosningum og miðað við þau úrslit yrði Árni Rúnar 1. varaþingmaður Samfylkingarinnar í kjördæminu. Árni Rúnar sagði í samtali við vefinn að hann væri ákaflega ánægður með þessa niðurstöðu. „Í upphafi baráttunnar gerði ég mér veikar vonir um að ná 4. sætinu. En til þess að það gæti gengið eftir vissi ég að allt þyrfti að ganga upp. Ég var að kljást við 10 öfluga frambjóðendur sem koma frá fjölmennari stöðum í þessu stóra og mikla kjördæmi. Þetta var því erfitt verkefni frá upphafi.“
„Þakklátur fyrir stuðninginn“
Eins og flestir vita nær Suðurkjördæmi frá Garðskagavita í vestri að Hvalnesskriðum í austri. Kjördæmið er því gríðarlega stórt og víðfeðmt og ljóst að þeir frambjóðendur sem koma frá fjölmennari byggðalögum njóta ákveðins forskots á þá sem koma frá fámennari svæðum. „Það var auðvitað ljóst að ég myndi ekki ná markmiðum mínum nema að njóta víðtæks stuðnings úr kjördæminu og það virðist hafa gengið eftir. En í huga mínum er fyrst fremst þakklæti á þessari stundu, þakklæti fyrir þann velvilja sem ég fann fyrir hjá Hornfirðingum á meðan þessi barátta var í algleymingi sem alls ekki var háður neinum pólitískum víglínum. Og auðvitað er ég þakklátur þeim flokksfélögum og stuðningsmönnum ´s sem lögðu lykkju á leið sína um síðustu helgi til að kjósa mig. Sá stuðningur fleytti mér að lokum í 4. sætið.“





Skrifa athugasemd