Fréttir
FAS ljósmyndasyning
FAS ljósmyndasyning
Mynd FAS

20.11.2012 Fréttir

Önnur ljósmyndasýning NemFAS

Síðast liðinn þriðjudag settu nemendur í ljósmyndaklúbbi NemFAS upp sína aðra sýningu á veggjum Nýheima en myndirnar eiga það allar sameiginlegt að vera teknar utandyra.

Krakkarnir í ljósmyndaklúbbnum vinna nú að því að setja saman dagatal með myndum sem þeir hafa tekið í vetur. Verður það án vafa hið glæsilegasta dagatal og eru heimamenn hvattir til þess að styrkja nemendafélagið og ljósmyndaklúbbinn með því að fjárfesta í dagatali fyrir jólin.
Gestir og gangandi eru boðnir velkomnir í Nýheima og njóta sýningarinnar.  Myndirnar munu hanga upp það sem eftir er annarinnar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica