Fréttir
Sunset
Sunset

15.11.2012 Fréttir

Minningartónleikar í Nýheimum í kvöld

Í Kvöld verða forvarnar-tónleikar til minningar um Hallgerði Valsdóttur sem lést fyrir aldur fram vegna  ofneyslu eiturlyfja sem hún barðist við í mörg ár. Vinkona hennar Margrét Einarsdóttir langar að minnast hennar og vekja athygli á þessum vágesti  sem fíkniefni eru og geta komið við hjá hverjum sem er.
Í tilefni þess hefur Margrét hóað saman í stóra kvenna tónlistarveislu í salnum í Nýheimum  í kvöld fimmtudag 15. nóvember kl.20:30. Þar mun Margrét koma fram ásamt vinkonum  sínum, þeim Þórgunni, Guðrúnu Femu, Snæju og hljómsveitinni Dinnerdúkkunum en hana skipa, Helga Bogga, Ragga, Ninna og Erna Gísla. 

Ókeypis aðgangur verður á tónleikana en tekið er við frjálsum framlögum til styrktar forvarnarstarfi.  Kvennakór Hornafjarðar mun sjá um kaffi og vöfflusölu sem fjáröflun fyrir kórinn.


BB

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica