Olía finnst í FAS
Tæplega 20 krakkar í FAS í fimm liðum hafa eyddu deginum í gær í það að leita að olíu.
Þau lærðu hvenig olía myndast, hvernig hægt er að leita að henni og hvað þarf til að ná henni upp úr jörðinni. Aðal tilgangurinn er að sjálfsögðu að græða á öllu saman. Það er margt í gangi í leikunum í einu og því reynir á samvinnu nemenda. Þó leiknum hafi ekki lokið í gær hafa öll liðin þegar fundið olíu og jafnvel hafa einhverjir grætt á fyrirtækinu sínu.
Það er þó dagurinn í dag sem skiptir öllu máli en þá fer aðalkeppnin fram. Það lið sem vinnur landskeppnina á Íslandi öðlast þátttökurétt á lokamótinu sem fer fram í London 25. - 27. janúar næst komandi.
Það er því til mikils að vinna og vonum við að krökkunum gangi sem best í dag.
www.fas.is





Skrifa athugasemd