Fréttir
Loftmynd af Höfn
Loftmynd af Höfn
Höfn

09.11.2012 Fréttir

Draumasveitarfélagið - Hornafjörður í fjórða sæti.

Í nýjasta tölublaði Vísbendingar kemur fram að sveitarfélagði Hornafjörður stendur fjárhagslega mjög vel miðað við önnur sveitarfélög á landinu og er valið í fjórða sæti sem draumasveitarfélag. Garðabær kom best út og var valið draumasveitarfélagið.

Tímaritið gaf sveitarfélögum á landinu einkunn þar sem gerður er samanburður á hvernig þau eru stödd fjárhagslega. Þar eru fimm þættir skoðaðir; breytingar á fjölda íbúa, afkoma sem hlutfall af tekjum, skattheimta, hlutfall skulda af tekjum og veltufjárhlutfall.

Hornafjörður kemur mjög vel út í samanburði við önnur sveitarfélög.

Þegar gerður er samanburður á landsvísu þá er skuldastaðan á Hornafirði ásættanleg, þegar reiknaðar eru skuldir sem hlutfall af tekjum. Árið 2011 eru skuldir 52% sem hlutfall af tekjum en sem dæmi þá eru skuldir hlutfall af tekjum í Reykjavík 263%, Fjarðarbyggð 208% og Garðabæ 67%.

Fólksfjöldi á landinu öllu var 0.5% en á Hornafirði jókst íbúatalan um 1% sem er helmingi meiri en meðaltal á landsvísu. Talið er að íbúafjölgun gefi vísbendingu um að betri skilyrði eru í viðkomandi sveitarfélögum og ef íbúafækkun á sér stað eru skilyrði ekki eins og best verður á kosið.

Veltufjárhlutfallið á Hornafirði er 1,35 sem gefur vísbendingu um að sveitarfélagið sé með nokkuð góða lausafjárstöðu, miðað við að draumasveitarfélagið hafi veltufjárhlutfall nálægt  1.0. Þá er afkoma sem hlutfall af tekjum 7.9% en á að vera sem næst 10%.



BB

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica